12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2170 í B-deild Alþingistíðinda. (142)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Ég vil beina því til hæstv. forseta, hvort ekki væri rétt að fresta þessu máli. Að vísu mun ekkert vera að athuga við kjörbréf, en verði það samþ., mun viðkomandi þm. þar með taka sæti á Alþingi, en það tel ég ekki rétt, meðan ekki liggja fyrir ástæður um forföll.