20.12.1945
Efri deild: 54. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)

155. mál, ráðstafanir vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Þetta frv. er einnig flutt af fjhn. neðri deildar eftir beiðni minni, en það er gamall kunningi. Lög sama efnis, sem hafa verið í gildi, falla úr gildi í lok þessa árs. Ég býst ekki við, að um það séu skiptar skoðanir, að framlengja þurfi þessa heimild, en því þarf að hraða svo, að þetta öðlist lagagildi fyrir áramót. Ég vil því mælast til, að þetta verði samþ. án þess að málið fari til n.