17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (1519)

148. mál, nýbyggingarráð

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Mér skilst, eftir því, sem nú er upplýst um þetta mál, sem það sé ekki þingmál, og þurfi þess vegna ekki að ræða það. Þetta mál er komið hér inn í þingið, án þess nokkur sé raunverulega flm. þess. En það er eitt af þeim ákvæðum l. um það, hvernig háttað skuli störfum á Alþ., að ef mál skuli tekið fyrir, þá gerist einhver flm. þess. Nú er upplýst, að enginn flm. er að þessu máli, og er þess vegna nokkuð áfátt um meðferð þess, þar til úr því er bætt.