17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1528)
148. mál, nýbyggingarráð
Ásgeir Ásgeirsson:
Ég hef átt tal við þrjá fjhnmenn, sem allir eru því samþykkir, að mál þetta sé flutt í þeirra nafni, og ég er sá fjórði. Og eftir fyrri ræðu mína skoraðist hv. þm. V.-Húnv, ekki undan því að teljast flytja málið. Nú hefur hann hins vegar helzt úr lest með það, að því er virðist út af málflutningi hv. þm. V.-Sk., og vill nú ekki láta telja sig með í að flytja frv. En það kostar það, að það verður að prenta upp frv., eins og oft hefur verið gert á þessu þingi, og setja í staðinn fyrir að það sé flutt af fjhn., að það sé flutt af meiri hl. fjhn.
Til þess hef ég aldrei ætlazt að verða friðhelgur fyrir hv. þm. V.-Sk. hér, því að það er enginn hv. þm. í þessum sal.