17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)

148. mál, nýbyggingarráð

Skúli Guðmundsson:

Út af ummælum hv. þm. V.-Ísf. vil ég geta þess, að það var hans fyrri ræða, sem ég aðallega byggði það á að gerast ekki flm. að þessu frv. Því að þar kom það fram, að þetta frv. hefði verið sett í prent sem flutt af fjhn. allri, áður en talað var við form. n. og hann talaði við aðra. Og það er sú óvenjulega aðferð, sem ég get ekki fallizt á, að upp verði tekin í flutningi þingmála.