20.12.1945
Efri deild: 57. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1547)

148. mál, nýbyggingarráð

Forsrh. (Ólafur Thors):

Það er rétt, sem hv. þm. Str. sagði, það verður að hafa sérstaka gát á gjaldeyrinum, en það hefði orðið að gera, þótt þetta hefði ekki komið til. Það út af fyrir sig þarf ekki að koma í bága við frílistann. Það getur að minni hyggju farið saman, þótt ótakmarkaður gjaldeyrir sé ekki til umráða.