12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (155)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Hermann Jónasson:

Það var hér minnzt á af einum hv. þm., að það hefði áður komið fyrir, að þm. hefðu horfið af þingi og varamenn tekið sæti. En í þeim tilfellum hefur forseti einatt fengið í hendur skýrslu um forföll og fallizt á þau. Í þessu tilfelli liggur ekkert slíkt fyrir.