12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Gísli Sveinsson:

Ég vil benda hv. þm. Str. á, að það er alls kostar sams konar dæmi, þegar hv. 2. landsk. hvarf af þingi og varamaður tók sæti. Það er ekki venja hér á Alþingi að vefengja forföll þingmanna og ekki ástæða til að byrja á því nú.