08.02.1946
Efri deild: 62. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1637)

62. mál, þjóðjarðasala og kirkjujarða

Forseti (ÞÞ) :

Ég vil reyna nafnakall og bið því hv. þm. að hlaupast ekki af fundi. Fundur hefur nú staðið í aðeins 20 mínútur, og ætti að vera hægt fyrir þm. að halda sig inni ekki lengri tíma. Ég vil því biðja þá hv. þdm., sem vilja, að málinu sé vísað til 3. umr., að gera svo vel að segja já.

Frv. vísað til 3. umr. með 9:1 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: EE, GJ, HermJ, IngP, JJ, LJóh, MJ, PHerm, ÞÞ.

nei: HG.

7 þm. (BSt, BBen, BrB, GÍG, KA, PM, StgrA) fjarstaddir.