26.11.1945
Efri deild: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (1670)

23. mál, byggingar- og landnámssjóður

Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson) :

Þar sem svo er ástatt, að n. sú, hv. landbn., sem hefur frv. þetta til athugunar, hefur nú skilað álitsgerð og ekki átt þess kost að ræða þessa brtt. hv. 1. þm. N.-M., vil ég mælast til þess við hæstv. forseta og þm., að n. sé gefinn kostur á að kynna sér og ræða þessa brtt., áður en tekin er endanleg afstaða til málsins, og verði það því tekið af dagskrá.