08.02.1946
Neðri deild: 65. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)

39. mál, girðingar kringum hveri og laugar

Sigurður E. Hlíðar:

Ég sé ekki, að þetta frv. þurfi að sæta löngum umræðum. Það hefur fengið ýmsar leiðréttingar frá allshn., og þakka ég n. fyrir þær.

Mér finnst ekki þurfa neina gagnrýni, það liggur ljóst fyrir, hvað fyrir mér vakir með frv., en það er, að girt verði af hættuleg hvera- og laugasvæði til að forða því, að menn og skepnur verði fyrir slysi af þess völdum, eins og oft hefur komið fyrir.