04.03.1946
Neðri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (1748)
119. mál, eyðing svartbaks
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Landbn. hefur fengið til meðferðar þetta mál, sem er komið frá hv. Ed. og hafði verið samþ. þar óbreytt, og afgr. n. það á fundi sínum. En á þeim fundi voru tveir hv. nefndarmenn fjarverandi, þannig að það eru ekki nema þrír þm., sem standa að þessu nál. Er mér ekki kunnugt um afstöðu hinna tveggja nefndarmannanna. En meiri hl. n., sem málið afgreiddi, leggur eindregið til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Ed. Og ég hygg, að það muni vera reynslan yfirleitt, að sú löggjöf, sem hér er um að ræða, hafi komið að töluverðu liði um að útrýma eða eyða þessum vágesti í varplöndum, sem svartbakurinn er. Tel ég, að rétt sé að halda þessu ákvæði í l. enn um skeið. — Að svo mæltu legg ég málið fyrir hv. þd.