21.11.1945
Efri deild: 34. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

91. mál, gjaldaviðauki 1946

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Þar sem frsm. þessa máls er ekki viðstaddur, vil ég taka að mér að segja fáein orð um þetta mál fyrir hans hönd.

Þetta er sams konar frv. og samþykkt var á síðastliðnu Alþingi, og var fjhn. sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. óbreytt.