23.11.1945
Neðri deild: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)

60. mál, raforkulög

Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :

Ég þarf ekki að svara miklu ræðu hv. 1. þm. Skagf. Hæstv. ráðh. hefur gert það, en ég vil taka það fram varðandi sum þau atriði, sem hann minntist á, að ég leyfi mér fyrir hönd iðnn. að heita því, að þessi atriði skuli rædd við hæstv. ráðh. Og ég skal jafnframt viðurkenna, að ég get fallizt á sum rök þessa hv. þm.