23.11.1945
Neðri deild: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)

60. mál, raforkulög

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Ég vil bara svara hv. þm. Skagf. með því að spyrja hann, hvernig hann hygðist framkvæma sína till., ef hún yrði samþ. (SkG: Það stendur, að fara skuli eftir meðaltali.) Ég hygg; að erfitt gæti orðið að finna það meðaltal. (SkG: Geti verkfræðingar ekki reiknað það út, þá geta aðrir það.) Ég hygg nú samt, að hv. þm, V.-Húnv. mundi veitast það fullerfitt, a. m. k. treysti ég mér ekki til þess.