26.02.1946
Efri deild: 72. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (1979)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Bjarni Benediktsson:

Síðast þegar þetta mál var hér á dagskrá, kom fram till. um að fresta því og vísa til n. Hv. þm. Dal. (ÞÞ) gegndi þá forsetastörfum, og bar hann ekki upp till. um að vísa því til n., vegna þess að samkomulag lá fyrir um að fresta því að málið yrði tekið fyrir, þar til n. hefði haft tækifæri til að athuga það í sambandi við beiðni, sem kom fram frá hv. þm. S.-Þ. (JJ), hv. 1. þm. Eyf. og mér. Lýsti forseti yfir, að málinu yrði frestað, þar til n. hefði athugað það.