27.03.1946
Efri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að óskað hefur verið eftir að halda þessari umr. opinni nokkuð enn, þangað til séð verður, hvernig semst um hin önnur frv., sem fylgja þurfa við afgreiðslu þessu frv. Og m. a. þess vegna féll ég frá orðinu í þessu máli. Ég treysti því, að ekki verði lokið umr. um þetta mál fyrr en a. m. k. okkur hefur verið tilkynnt, að samkomulag hafi orðið um afgreiðslu þessara hliðstæðu mála.