29.11.1945
Efri deild: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Bjarni Benediktsson:

Hv. þm. S.-Þ. hefur borið fram fyrirspurn. Í tilefni af því vildi ég gjarnan fá þær upplýsingar hjá hv. þm., hvernig varið sé fjárráðum nýbyggingarráðs. Ég kannast ekki við þau. Ég hugsa, að við ættum fyrst að flytja till. um að veita því fjárráð, áður en við eyðum fénu.

Hv. þm. Barð. segist hafa skrifað eftir mér ummæli þau, sem hann vitnaði til. Ég er ekki að bera á móti því, að hv. þm. hafi skrifað þau niður, en hann hefur annaðhvort misskrifað þau eða ég mismælt mig í ræðu minni um daginn. En hafi ég sagt þetta, hef ég sagt það í öðru sambandi.