12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Ég vil vekja athygli á því, að sjútvn. hefur alls ekki gefizt tími til að taka málið fyrir, en það hafa verið gerðar talsverðar breyt. á því í Ed. Ég vil eindregið óska þess, að n. verði gefinn kostur á að taka málið til meðferðar, áður en það verður afgr. frá d.