11.12.1945
Neðri deild: 51. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)

32. mál, búnaðarmálasjóður

Pétur Ottesen:

Það stendur svo á, eftir því sem mér skilst, að einn hv. þm. hefur fengið brottfararleyfi af þingi nú í dag, og vildi ég því mjög mælast til þess við hæstv. forseta, að hann sæi sér fært að láta nú þegar fara fram atkvgr. um þetta mál. (BK: Ég vil líka óska þess mjög eindregið, að mér sé gefinn kostur á að taka þátt í atkvgr. um málið.)