11.12.1945
Neðri deild: 51. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)

32. mál, búnaðarmálasjóður

Forseti (BG) :

Ég hef látið fara fram athugun á því, hvort allir hv. þdm. muni vera hér staddir. Ég tel rétt að láta ekki fram fara atkvgr. um svo mikið deilumál, nema allir hv. þdm. séu viðstaddir. Mun ég reyna að sjá um, að hv. þm. N.-Þ. geti greitt atkv. um málið. En fari svo, að ekki verði hægt að ganga til atkvgr. um málið nú, mun ég fresta atkvgr. fram yfir hátíðar. Mér virðist, að hv. þm. ættu að geta sætt sig við, að málið bíði, þangað til hv. d. kemur aftur saman til funda á næsta ári, því að það er ekki svo aðkallandi að afgr. þetta mál.