04.10.1945
Neðri deild: 2. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

Kosning fastanefnda

Forseti (BG) :

Fram hefur komið ósk um, að fundi verði frestað til kl. 4, og hefur forseti fallizt á, ef hv. þdm. mæla ekki því í gegn, að verða við þeirri ósk, en hún er komin frá formanni þingflokks framsóknarmanna. (Forsrh.: Ég óska fremur eftir því, að fundi verði nú haldið áfram). Hæstv. forsrh. óskar eftir, að fundi verði haldið áfram, og vísa ég því þá til aðgerða hv. deildar.