06.02.1946
Neðri deild: 64. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (2265)

149. mál, virkjun Sogsins

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Vegna orða hv. þm. Árn., að í raforkufrv., sem liggur fyrir Ed., væri ekki heimild til að virkja nema 2 þús. hestöfl, vil ég taka fram, að mér var þetta fyllilega ljóst, því að ef raforkufrv. hefði heimilað stærri stöðvar, hefði ekki þurft að flytja þetta frv. En ég álít ekki óeðlilegt, að einmitt Reykjavík fengi nokkuð aukna heimild.