04.10.1945
Neðri deild: 2. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (24)
Kosning fastanefnda
Forsrh. (Ólafur Thors):
Ég vil ekki véfengja, að þetta hafi verið venja, en það er ekki lögmæt ástæða, og ég segi, að það geti verið heppilegra, að kosningar í deildum fari fram fyrr, alveg eins og form. Framsfl. segir, að það geti verið heppilegra, að fyrst sé kosið í Sþ. Ég vil því fremur mælast til, að kosningar verði látnar fara fram í d. nú.