21.11.1945
Efri deild: 34. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (247)

92. mál, tekjuskattsviðauki 1945

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Þetta frv. lá fyrir fjhn. d., og urðu allir viðstaddir nm. sammála um að mæla með því, að frv. yrði samþ. óbreytt. Hv. 1. þm. Eyf. var ekki mættur á fundi, þegar málið var tekið fyrir, og flytur hann brtt. á þskj. 188. En þar sem þessar brtt. hafa ekki verið ræddar í n., vildi ég mælast til, að hv. þm. tæki þær aftur til 3. umr.