15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1712 í B-deild Alþingistíðinda. (2565)
105. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Frsm. minni hl. (Páll Zóphóníasson) :
Herra forseti. Það var brtt., sem fram er komin á þskj. 856, sem gaf mér tilefni til þess að standa upp. Hún fer fram á, að ríkisstj. sé heimilt að endurgreiða toll af þeim tilbúnum innfluttum húsum, sem flutt verða inn á árinu 1946.
Eins og við vitum, eru þessi hús tolluð mikla hærra en venjulegt byggingarefni, svo að það nemur um 8–10 þús. kr. á húsunum, umfram toll á því timbri, sem til þeirra færi annars, og mun þessi tollur hafa verið settur svo hátt til þess að iðnaðarmenn hefðu nóg að gera. En nú hafa þeir allir nóg að gera. Þess vegna finnst mér sjálfsagt að endurgreiða það af tollinum, sem hærra er en á timbri. Ég leyfi mér því að leggja til að bæta við brtt. 856 svo hljóðandi: „að því leyti, sem hann er hærri en á því byggingarefni óunnu, er til húsbygginganna þarf.“
Það á ekki lengur að hafa aukatoll, er á sínum tíma var settur til verndunar fagmönnum. Ég vona svo, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir þessari viðbótartill.