08.04.1946
Efri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1480 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)

29. mál, fræðsla barna

Forseti (StgrA) :

Mér hefur borizt skrifleg brtt. frá hv. þm. S.-Þ. við þetta frv., sem hér liggur fyrir, 36. gr. þess. Við aðra málsgr. bætist : „Enn fremur skal kenna börnum rétt rím í sambandi við helztu íslenzka bragarhætti“. Mun ég nú leita afbrigða um þessa brtt.