17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1549 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)
141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég verð að viðurkenna, að mér hefur ekki unnizt tími til að bera þetta frv. saman við núgildandi l. um fiskveiðasjóð. En ég vil víkja nokkrum orðum að síðustu málsgr. 3. gr. frumvarpsins. Mér finnst, að það geti leikið nokkur vafi á, að rétt sé að setja slíkt ákvæði í l., að þrengja skilyrðin til að fá lán úr sjóðnum um leið og fjármagn hans er aukið til muna. Menn vita ekki, hvenær heildaráætlun nýbyggingarráðs liggur fyrir né hvernig hún verður, og það mundi valda meiri fyrirhöfn og umsvifum, ef menn þyrftu hér eftir að leita til tveggja aðila til þess að fá lán, bæði nýbyggingarráðs og sjóðsstjórnarinnar.
Ég vildi aðeins skjóta því til hv. sjútvn., að hún tæki þetta atriði til nánari athugunar.