08.12.1945
Sameinað þing: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í B-deild Alþingistíðinda. (297)
16. mál, fjárlög 1946
Jónas Jónsson:
Ég hef flutt hér 2 brtt. og ætla að segja fáein orð um þær. Sérstaklega þætti mér vænt um, ef hæstv. samgmrh. væri við, af því að sú stærri þeirra snertir hans deild. Ég er að vísu þakklátur hv. fjvn. fyrir það, að hún hefur eftir atvikum gert tiltölulega vel til Húsavíkur með þeim 200 þús., sem hún hefur veitt þangað. N. hefur enn fremur í samráði við hæstv. ráðh. gert ráðstafanir til þess, að þetta yrði hækkað í meira lagi. En af því að þetta skiptir miklu fyrir Húsavík og síldarverksmiðjuna, vildi ég gjarnan heyra skoðun hæstv. ráðh. um þetta á þessu stigi málsins. Ég vil útskýra það lauslega, að á Húsavík stendur málið þannig, að þar var byggð bryggja fyrir nokkrum árum, og voru veggir hennar hafðir úr staurum. Sú bryggja er jafnframt varnargarður fyrir höfnina að sunnan og vestan. Síðan í fyrra hefur verið byggður aðalskjólgarðurinn, sem líka verður bryggja fyrir væntanlega síldarverksmiðju, og hefur verið unnið þar fyrir eina millj. kr., en þar þarf að vinna fyrir tvær millj. Jafnframt þessu kom í ljós, að kominn var timburmaðkur í þessa staura, og allar líkur eru til þess, að með vorinu muni staurarnir velta undan steinloftinu, og þá býst ég við, að annar hluti bryggjunnar lendi í höfninni. Þetta veit hæstv. ráðh. og hv. form. fjvn. vel og hafa reynt að teygja sig eins langt og þeir hafa getað. Málið stendur þannig, að það þarf að járnklæða bryggjuna fyrir 800 þús. kr. og það þarf að framlengja garðinn fyrir 1 millj. Það hefur verið um það talað að breyta þessu og hafa það eitthvað öðruvísi en er í fjárl. og fá einhverja hækkun, og það er það, sem ég vildi, að hæstv. ráðh. segði sína skoðun um, vegna þess að eins og nú er komið, þarf að reyna að halda þessu verki áfram, og um leið og þessi aðalgarður er kominn, þá eru komin skilyrði fyrir síldarverksmiðjur ríkisins að setja niður þá verksmiðju, sem þar á að koma. — Hitt málið er ákaflega lítið mál. Það er farið fram á að hækka fjárveitinguna til Snorragarðs úr 5 þús. í 10 þús. kr. Þessi fjárveiting hafði fallið niður hjá stj., en er nauðsynleg. Ég vil segja um þetta fáein orð, af því að í því er nokkuð nýtt, sem ég býst við, að gleðji hv. þm. Ég fékk í gær bréf frá Noregi frá Snorranefnd þar, sem var fyrir stríð búin að láta steypa fagra mynd af Snorra og ætlaði að gefa hana til Reykholts, en það hefur beðið síðan. Nú segjast þeir fyrir sitt leyti óska eftir að mega koma hingað í sumar og setja upp þessa mynd í Reykholti á sinni Ólafsvöku, 29. júlí, búast við að krónprinsinn komi og að sent verði herskip o. s. frv. Nú hefur verið unnið að því að gera allt sem þokkalegast kringum Reykholt, og er búið að laga þar mikið til, en við í þessari undirbúningsnefnd getum ekki komizt hjá því að ljúka við það að gera þetta svolítið aðgengilegt fyrir framtíðina, og er þess vegna ekki hægt að komast hjá því að fá a. m. k. 10 þús. kr. til þess. Þetta er líka lokafjárveitingin í þennan undirbúning, sem verið er að gera í Reykholti. — Ég hef svo ekki meira að segja um þessi mál.