15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (2971)

194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins

Skúli Guðmundsson:

Það er aðeins um meðferð málsins. Málinu hefur verið vísað til fjhn. Það var fundur í n. í dag, og ég gerði þá fyrirspurn um, hvort málið yrði ekki tekið fyrir, en form. kvað ríkisstj. ætla að athuga það nánar, áður en það væri tekið fyrir í n. Nú hafa komið fram allmargar brtt. Tel ég því eðlilegt, að umr. verði frestað og n. gefið tækifæri til að athuga málið.