17.04.1946
Efri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)
30. mál, gagnfræðanám
Gísli Jónsson:
Ég bar fram brtt. við barnaskólafræðsluna um, að ráðh. skyldi ekki heimilt að skipa í slíkar stöður gegn eindregnum mótmælum skólan. Sú till. var felld. En þessi till. gengur þó enn lengra en mín till. og skapar ósamræmi í fræðslul., og úr því þetta var fellt fyrir mér við barnaskólafrv., vil ég ekki vera með að skapa slíkt ósamræmi og segi nei.
Brtt. 739 felld með 10:3 atkv.
— 918 samþ. með 8:4 atkv.
Frv., svo breytt, samþ. með 9 shlj. atkv. og endursent Nd.