24.04.1946
Neðri deild: 119. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (3162)

107. mál, húsmæðrafræðsla

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Eins og kunnugt er, flyt ég brtt. á þskj. 949. Þær ganga í sömu átt sem till. þær, er hér voru við síðasta mál gerðar. Röksemdirnar eru hinar sömu hér og þar, og geri ég því ekki sérstaka grein fyrir þessum till.