23.04.1946
Neðri deild: 117. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1977 í B-deild Alþingistíðinda. (3215)

139. mál, almannatryggingar

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Mér þykir vænt um, að hæstv. menntmrh. staðfestir það, sem ég sagði. Ég gat ekki verið viðstaddur þegar á fundi þeim, sem hæstv. menntmrh. gat um, og gat því ekki rætt um I. kafla frv. eða yfirstjórn trygginganna. Ég vil því frábiðja mér algerlega þau svigurmæli, sem hv. 11. landsk. hafði hér í frammi.