23.04.1946
Neðri deild: 117. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)

139. mál, almannatryggingar

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Ég ætla ekki að deila við hæstv. menntmrh. um þetta mál. Ég tel, að af ræðu hæstv. forsrh. sé það ljóst, að sósíalistar hafa tekið þátt í samningum, og ekki hefur verið gengið frá I. kafla fyrr en eftir á. Mér þótti rétt að taka þetta fram vegna svigurmæla hv. 11. landsk. um niðurfelling ekkjubóta.