25.04.1946
Neðri deild: 121. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (3260)

139. mál, almannatryggingar

Páll Zóphóníasson:

Enda þótt þetta frv. veiti þegnum þjóðfélagsins, í því formi, sem það nú er, allmisjafnan rétt, lít ég svo á, að það sem miður fer, standi til bóta og verði lagfært á næstu árum, og segi ég því já.