25.04.1946
Neðri deild: 121. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (3262)

139. mál, almannatryggingar

Björn Kristjánsson:

Ég er og hef ætíð verið sannfærður um nauðsyn og réttmæti almannatrygginga, og hef því sterka tilhneigingu til að greiða atkvæði með málinu. En sökum þess að ég tel það stórgallað og illa undirbúið eins og það liggur hér fyrir, þá sé ég mér ekki fært að greiða atkvæði.