01.03.1946
Neðri deild: 78. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (3278)

142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag

Sigurður E. Hlíðar:

Þar sem ekki hefur orðið samkomulag um þetta mál í n., eins og sjá má af þeim brtt., sem fram eru komnar, en hins vegar hafa báðir hv. þm. viðkomandi kjördæmis óskað eftir samkomulagi við n. um málið, vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá að sinni.