27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Ég þakka ráðh. svarið, að svo miklu leyti sem ég get kallað það svar. Því að þegar færeysku skipin fóru í haust, talaði ég við einn skipstjórann persónulega, og hann sagði mér, að hann hefði fengið leyfi stjórnarráðs til að taka 25 tonn af maís. Ég veit ekki um annað, en er þó ekki grunlaus um, að það séu til fleiri dæmi þessu lík.