26.04.1946
Efri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2095 í B-deild Alþingistíðinda. (3339)

142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag

Ásmundur Sigurðsson:

Ég þarf ekki að vera margorður. Ég vil aðeins geta þess, að mér virðist mjög hæpið, að þessu þorpi sé ætlað nægilegt land, og því ástæða til að taka þetta einnig með. Það mun einnig hafa verið flutt till. um það í Nd., og í upphaflega frv. var Árbær með. En ég ætlaði ekki frekar að flytja brtt. um þetta, ef sú till. yrði sú eina, sem yrði þess valdandi, að frv. yrði að flækjast milli deilda.. En fyrst komnar eru hér fram aðrar brtt., sé ég ekki ástæðu til annars en að flytja þessa till. líka.