27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2140 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Ég get ekkert um það sagt, hvað farið hefur á milli hv. 2. þm. N.-M. og Færeyingsins, en ég trúi ekki fyrr en ég reyni, að fulltrúi í stjórnarráðinu hafi gefið mér skakkar upplýsingar. — Ég skil ekki, hvers vegna þm. var að tala um orðróm í gær, en nú um leyfi frá stjórnarráði. En ég hef sem sagt fengið þessar upplýsingar, að aðeins beiðni frá einum kaupmanni hafi komið til orða, en ekkert annað gerzt í þessu máli.