17.04.1946
Neðri deild: 116. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2129 í B-deild Alþingistíðinda. (3488)

241. mál, fyrningarafskriftir

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég bendi á, að ég féll frá að ræða málið og bera fram brtt. fyrir nokkrum mínútum, af því að frsm. n. lofaði að taka málið til athugunar milli umræðna. Þetta hefur honum ekki gefizt tími til, og mótmæli ég þessari meðferð málsins og hinu, að hv. frsm. n. sé gerður ómerkingur orða sinna.