27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2140 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Ég hygg, að ráðh. hafi tekið skakkt eftir, því að ég spurði um í sambandi við þennan orðróm, hvað mikið hefði verið flutt út og hvort sá útflutningur hefði verið leyfður. Úr því að ráðh. er svona óákveðinn og veit svo lítið í þessu máli, á hann að afla sér betri upplýsinga og gefa Alþingi þær síðar.