05.04.1946
Neðri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1611 í B-deild Alþingistíðinda. (3523)
141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Þetta eru aðeins örfá orð um atkvgr. Þannig er ástatt að þrír af mínum flokksmönnum eru fjarstaddir með fjarvistarleyfi og mundi þá atkvgr. dragast til mánudags, ef beðið væri eftir þeim, en það treysti ég mér ekki að fara fram á. Ég verð því að taka til baka brtt. mínar á þskj. 627 og lýsi jafnframt yfir því fyrir hönd okkar 6. landsk., að við tökum til baka til 3. umr. brtt. á. þskj. 626, og tek ég þá líka til baka brtt. á þskj. 702 og legg til, að brtt. á þskj. 699 og 700 verði teknar til baka.