03.04.1946
Efri deild: 98. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2175 í B-deild Alþingistíðinda. (3572)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Gísli Jónsson:

Út af þessu vildi ég spyrja hæstv. forseta, þar sem ekki hefur fallið annar úrskurður um þetta en frá forseta, hvort hann vildi ekki leyfa atkvgr. um þetta í d., hvort sá, sem áður hefur setið í Nd., skuli hafa fullan atkvæðisrétt í sömu málum hér í d. Hæstv. forseti hefur raunverulega aldrei fellt úrskurð um þetta beint, heldur á öðrum forsendum. Vildi ég því óska eftir atkvgr. um þetta atriði.