26.04.1946
Sameinað þing: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2175 í B-deild Alþingistíðinda. (3576)

Varamaður tekur þingsæti o. fl.

Frsm:

(Hermann Jónasson) : Herra forseti.

Kjörbréfan. hefur þegar haldið fund til þess að athuga þetta mál, símskeyti það, sem hér hefur verið lesið upp, og jafnframt kjörbréf Steingríms Steinþórssonar, sem er varamaður hv. 1. þm. Skagf., Sigurðar Þórðarsonar, sem nú er fjarverandi. N. hefur athugað þetta kjörbréf og er á einu máli að leggja til, að það verði tekið gilt, og geri ég það að till. minni fyrir hennar hönd.