21.12.1945
Sameinað þing: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2177 í B-deild Alþingistíðinda. (3584)

Þingfrestun

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Alþingi hefur með þál. í gær veitt samþykki til að fresta fundum Alþingis fyrst um sinn, þó ekki lengur en til 1. febr. n. k. Í ríkisráðinu var í gær gefið út svo hljóðandi forsetabréf :

„Forseti Íslands gerir kunnugt :

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 64. löggjafarþings, frá 21. des. 1945, enda verði þingið kvatt til framhaldsfunda eigi síðar en 1. febr. 1946.

Ritað í Reykjavík 20. des. 1945.

Sveinn Björnsson.

Ólafur Thors.“

Samkvæmt þessu lýsi ég yfir, að fundum Alþingis er frestað frá deginum í dag og að Alþ. verður kvatt saman aftur til framhaldsfunda eigi síðar en 1. febr. n. k.