21.12.1945
Sameinað þing: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (3585)

Þingfrestun

Forseti (JPálm) :

Þar sem nú er ákveðið, eins og skýrt hefur verið frá af hæstv. forsrh., að fresta Alþ. til 1. febr., þá vil ég þakka hv. þm. fyrir vinsamlega samvinnu við mig sem forseta, og það því fremur sem ég er alger óvaningur í þessu starfi. Jafnframt vil ég óska þeim utanbæjarþingmönnum, sem ekki eru farnir, góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og öllum hv. þm. óska ég gleðilegra jóla og gleði og farsældar á væntanlegu nýári.