29.04.1946
Neðri deild: 129. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (3608)

Starfslok deilda

Eysteinn Jónsson:

Ég veit, að ég mæli fyrir munn allra þdm., þegar ég að þinglokum færi hæstv. forseta þakkir fyrir góða stjórn á deildinni, lipurð hans og réttlæti í hinu vandasama starfi. Og ég vil biðja hv. þdm. að rísa úr sætum sínum og votta þar með hæstv. forseta þökk og virðingu. — [Dm. risu úr sætum.]