06.12.1945
Neðri deild: 50. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (3628)
12. mál, fiskimálasjóður o.fl.
Eysteinn Jónsson:
Í byrjun þingsins flutti ég frv. um fiskimálasjóð o. fl. Málið var til meðferðar í sjútvn. 25. nóv., og 26. nóv. var gefið út nál., sem mun vera á þskj. 235, en þetta mál er ekki enn þá komið fram í d. Ég hlýt að gera þá kröfu, að það verði ekki dregið lengur að taka málið á dagskrá, þar sem það er með fyrstu málum þingsins, eða 12. mál.