19.02.1946
Neðri deild: 70. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (3634)
12. mál, fiskimálasjóður o.fl.
Frsm. meiri hl. (Lúðvík Jósefsson):
Ég vil aðeins gera örfáar aths. við ræðu hv. 2. þm. S.-M.
Ég vil geta þess, að það er ekkert nýmæli, að fiskveiðasjóður láni til bátakaupa, þó að hann hins vegar hafi aðallega lánað til hraðfrystihúsa. Í l. sjóðsins er fullkomin heimild fyrir að lána til bátakaupa, enda nauðsynlegt, þegar verið er að gera eins miklar ráðstafanir til endurnýjunar bátaflotanum og nú er.
Þá vil ég aðeins drepa á það, að hv. þm. er undrandi yfir, að við skyldum ekki flytja brtt. Þetta hefði verið framkvæmanlegt, en við álítum heppilegra að flytja till. um breyt. á núgildandi l. en fara að hrófla við þessu frv. Það gefast ef til vill tækifæri til þess að efla sjóðinn, og ef það er aðalatriðið, þá standa vonir til þess enn, að við getum orðið sammála um það, hv. 2. þm. S.-M. og ég. En viðvíkjandi skipulagsbreytingum sjóðsins skal ég taka það fram, að vegna þess að nú liggur fyrir, að sérstök athugun fari fram á því, hvernig starfsemi fiskimálasjóðs og fiskimálanefndar verði bezt fyrir komið, viljum við heyra þá niðurstöðu, áður en nokkur breyting verður gerð á fyrirkomulagi fiskveiðasjóðs.
Ég þarf ekki að eyða fleiri orðum, — það er öllum ljóst, hvað við er átt, og legg ég áherzlu á, að hin rökst. dagskrá frá meiri hl. sjútvn. nái fram að ganga.